Frá 1. janúar 2011 eru dómsmálagjöld við meðferð einkamála fyrir Hæstarétti sem hér segir:
1. Gjald fyrir kæru er kr. 50.000 og greiðist til héraðsdómstóls.2. Gjald fyrir áfrýjunarleyfi kr. 50.000.
3. Gjald fyrir áfrýjunarstefnu er:
- Þegar áfrýjunarfjárhæð er allt að kr. 3.000.000 er gjaldið kr. 25.000.
- Þegar áfrýjunarfjárhæð er kr. 3.000.000 - 30.000.000 og þegar krafist er viðurkenningar á réttindum og eða skyldum er gjaldið kr. 50.000.
- Þegar áfrýjunarfjárhæð er kr. 30.000.000 – 90.000.000 er gjaldið kr. 130.000.
- Þegar áfrýjunarfjárhæð er 90.000.000 – 150.000.000 er gjaldið kr. 200.000.
- Þegar áfrýjunarfjárhæð er 150.000.000 eða hærri er gjaldið kr. 300.000
4. Gjald fyrir þingfestingu er kr. 25.000.
Gjöld greiðast ekki í eftirfarandi málum:
1. Málum til innheimtu vinnulauna.2. Barnfaðernismálum.
3. Málum til vefengingar á faðerni barns.
4. Lögræðissviptingarmálum.
5. Kjörskrármálum.
6. Einkarefsimálum.
7. Gjafsóknarmálum að því leyti sem gjald yrði lagt á gjafsóknarhafa.
8. Forsjármálum.
9. Afhendingarmálum sbr. lög nr. 160/1995.
(Lög um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl.)