Meginreglur við áfrýjanir og kærur til Hæstaréttar
Áfrýjun
Um áfrýjanir einkamála til Hæstaréttar fer skv. lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991 ( eml. )
Dómi í einkamáli verður áfrýjað til Hæstaréttar innan þriggja mánaða frá uppkvaðningu hans í héraði. ( 1. mgr. 153. gr. eml.)
Hæstiréttur getur orðið við umsókn um leyfi til að áfrýja dómi næstu þrjá mánuði eftir lok áfrýjunarfrests. Um skilyrði fer skv. a-c liðum 4. mgr. 152. gr. eml. Fyrir áfrýjunarleyfi skal greiða 50.000 krónur skv. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs með síðari breytingum.
Varði mál fjárkröfu er skilyrði áfrýjunar að fjárhæð nemi 300.000 krónum, miðað við lánskjaravísitölu 1. júlí 1992 (804.146 krónur fyrir árið 2017). Skal ákveða fjárhæð eftir höfuðstól kröfu í áfrýjunarstefnu. Er ekki tekið tillit til vaxta, málskostnaðar o.þ.h. Séu kröfur fleiri en ein skal leggja þær saman. ( 1. og 2. mgr. 152. gr. eml.)
Varði mál annars konar kröfu en fjárkröfu ákveður Hæstiréttur hvort hagsmunir svari til áfrýjunarfjárhæðar. ( 3. mgr. 152. gr. eml.)
Nái krafa eða hagsmunir ekki áfrýjunarfjárhæð getur Hæstiréttur orðið við umsókn um áfrýjunarleyfi. Um skilyrði þess hvort leyfi verði veitt fer skv. a-c liðum 4. mgr. 152. gr. eml. Fyrir áfrýjunarleyfi skal greiða 50.000 krónur skv. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991.
Sá er hyggst áfrýja héraðsdómi skal leggja fyrir Hæstarétt áfrýjunarstefnu í tveimur eintökum, ásamt héraðsdómi. ( 1. mgr. 155. gr. eml.) Hæstiréttur heldur tveimur eintökum stefnunnar, en áfrýjandi fær frumrit afhent.
Fyrir útgáfu áfrýjunarstefnu skal skv. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991 með síðari breytingum greiða 25.000 krónur af áfrýjunarfjárhæð allt að 3.000.000 krónur, 50.000 krónur af áfrýjunarfjárhæð frá 3.000.000 krónum að 30.000.000 krónum og vegna mála þar sem krafist er viðurkenningar á réttindum og/eða skyldum, 130.000 krónur af áfrýjunarfjárhæð frá 30.000.000 krónum að 90.000.000 krónum, 200.000 krónur af áfrýjunarfjárhæð frá 90.000.000 að 150.000.000 krónum og 300.000 krónur af áfrýjunarfjárhæð frá 150.000.000 krónum og fjárhæðum umfram það.
Í áfrýjunarstefnu skal Hæstiréttur tiltaka hvenær stefndi skuli í síðasta lagi tilkynna Hæstarétti um að hann hafi í hyggju að halda uppi vörnum í málinu. ( e liður 1. mgr. 155. gr. eml.) Áfrýjunarstefnu verður að birta ekki síðar en viku áður en sá frestur stefnda er á enda ( 5. mgr. 155. gr. eml.)
Áfrýjandi skal þingfesta mál fyrir Hæstarétti í síðasta lagi á sama degi og tilgreindur hefur verið dagur fyrir stefnda til að tilkynna um varnir. ( 1. mgr. 156. gr. eml.) Frestur til þingfestingar er að jafnaði ákveðinn 6 vikur frá útgáfu stefnu, nema sérstaklega standi á. Við þingfestingu skal áfrýjandi afhenda áfrýjunarstefnuna ásamt sönnun fyrir birtingu hennar, greinargerð af sinni hálfu og málsgögn í sjö eintökum. Um frágang málsgagna fer skv. reglum nr. 601/2014 um málsgögn.
Við þingfestingu skal áfrýjandi greiða þingfestingargjald, 25.000 krónur skv. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991.
Þegar mál hefur verið þingfest af hálfu áfrýjanda er stefnda veittur frestur til að skila greinargerð af sinni hálfu ef hann hefur tilkynnt að hann hafi í hyggju að halda uppi vörnum. Er sá frestur að jafnaði 4 vikur. Innan sama frests getur stefndi gagnáfrýjað héraðsdómi, en það verður hann að gera ef hann ætlar að leita breytinga á niðurstöðum dómsins. Sendir Hæstiréttur stefnda um leið eintak af málsgögnum áfrýjanda. ( 1. mgr. 158. gr. eml.) Hafi stefndi ekki tilkynnt Hæstarétti að hann vilji halda uppi vörnum í málinu verður það þegar tekið til dóms án munnlegs málflutnings, en líta verður svo á að stefndi krefjist staðfestingar héraðsdóms. ( 3. mgr. 158. gr. eml.)
Hafi málsaðilar ekki þegar lýst gagnaöflun lokið í greinargerðum sínum, ákveður Hæstiréttur sameiginlegan þriggja vikna frest handa þeim til að ljúka gagnaöflun í málinu. ( 1. mgr. 156. gr. eml.)
Þegar gagnaöflun er lokið er máli frestað til málflutnings með tilkynningu réttarins þar um. ( 1. mgr. 161. gr. eml.)

Um áfrýjanir sakamála til Hæstaréttar fer skv. lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (sml.)
Ákærði getur áfrýjað dómi í opinberu máli til Hæstaréttar innan fjögurra vikna ( 28 daga ) frá því héraðsdómur er birtur fyrir honum. Verður ákærði þá að tilkynna áfrýjun bréflega til ríkissaksóknara. Í tilkynningunni skal tekið nákvæmlega fram í hverju skyni áfrýjað er, sbr. 2. mgr. 199. gr. sml. Ríkissaksóknari getur áfrýjað héraðsdómi innan 4 vikna frá uppkvaðningu hans. (3. mgr. 199. gr. sml.)
Dómi verður áfrýjað til að fá: a. endurskoðun á ákvörðun viðurlaga, b. endurskoðun á niðurstöðum sem eru byggðar á skýringu eða beitingu réttarreglna, c. endurskoðun á niðurstöðum sem eru byggðar á mati á sönnunargildi annarra gagna en munnlegs framburðar fyrir héraðsdómi, d. ómerkingu á héraðsdómi og heimvísun máls, e. frávísun máls frá héraðsdómi.
Sakamáli verður áfrýjað án leyfis Hæstaréttar ef ákærði hefur sótt þing í héraði og verið: 1. dæmdur til skilorðsbundinnar eða óskilorðsbundinnar refsivistar, 2. dæmdur til greiðslu sektar eða eignaupptöku að hærri fjárhæð en 804.146 krónum 3. sýknaður af kröfum ákæruvalds. Áfrýjun í slíku tilviki tekur til ákæruvalds.

1. ákærði hefur í héraði verið dæmdur til greiðslu sektar eða eignaupptöku að lægri fjárhæð en 804.146 krónum 2. mál hefur verið dæmt í héraði að ákærða fjarstöddum (útivistarmál)
Þegar áfrýjun er ráðin gefur ríkissaksóknari út áfrýjunarstefnu, sem hann lætur birta fyrir ákærða ef áfrýjað er af hálfu ríkissaksóknara án beiðni ákærða. Í tilkynningu ákærða um áfrýjun eða þegar áfrýjunarstefna er birt honum skal hann tilkynna hvern hann vilji fá skipaðan sem verjanda. Að því búnu sendir ríkissaksóknari Hæstarétti áfrýjunarstefnuna og skipar rétturinn ákærða þá verjanda. (5. mgr. 201. gr. sml)
Eftir áfrýjun skal héraðsdómstóll verða við beiðni ríkissaksóknara um afhendingu dómsgerða. Eftir að dómsgerðir hafa borist og verjandi hefur verið skipaður skal ríkissaksóknari að höfðu samráði við verjanda búa til málsgögn. Hæstarétti eru afhent átta eintök af málsgögnum, en um gerð þeirra gilda reglur nr. 600/2014.
Þegar málsgögn hafa borist Hæstarétti ákveður rétturinn ákæruvaldi og verjanda frest til að skila greinargerðum og frekari gögnum. Þeim er lýst hefur áfrýjun er veittur tveggja vikna frestur í því sambandi og gagnaðila viku frestur umfram frest áfrýjanda. (1. mgr. 155. gr. oml.)
Eftir afhendingu greinargerða og gagna er málinu frestað til munnlegs málflutnings.

Kærur
Dómsathöfn verður kærð til Hæstaréttar áður en tvær vikur eru liðnar frá uppkvaðningu úrskurðar og ber að afhenda héraðsdómara skriflega kæru innan þess tímamarks. Ef aðili eða umboðsmaður hans er ekki viðstaddur á dómþingi þegar úrskurður er kveðinn upp er kærufrestur hans tvær vikur frá því að hann fékk vitneskju um úrskurðinn. (1. mgr. 144. gr. eml.)
Fyrir kæru til Hæstaréttar skal greiða til héraðsdóms 50.000 krónur skv. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991, með síðari breytingum.
Úrskurðir héraðsdómara sæta aðeins kæru til Hæstaréttar ef þeir fjalla um efnisatriði, sem eru talin upp í a - r liðum 1. mgr. 143. gr. eml. Eftir að aðalmeðferð máls er hafin verður úrskurði héraðsdómara ekki skotið til æðra dóms, nema hann sé um atriði samkvæmt a - f liðum 2. mgr. 143. gr. eml.
Héraðsdómari sendir kæruna til Hæstaréttar og gagnaðila þess sem kærir svo fljótt sem verða má nema hann kjósi sjálfur að fella kærðan úrskurð úr gildi. (1. mgr. 147. gr. eml.)
Sá sem kærir úrskurð eða dómsathöfn skal senda Hæstarétti, innan tveggja vikna frá því að kæra hans barst héraðsdómi, þau gögn málsins í fjórriti sem hann telur sérstaklega þörf á til úrlausnar um kæruefnið. Hann skal þá einnig, ef hann kýs, afhenda Hæstarétti skriflega greinargerð sem geymi kröfur hans og málsástæður sem byggt er á. Hann skal samtímis afhenda gagnaðila eitt eintak kærumálsgagna og greinargerðar. Gögnum skal fylgja skrá um þau og skulu þau vera í því horfi sem Hæstiréttur mælir fyrir um. (3. mgr. 147. gr. eml.)
Sóknaraðili ber ábyrgð á að kærumálsgögn séu í þeim búningi sem mælt er fyrir um í reglum um kærumálsgögn í einkamálum sem birtar eru á heimasíðu réttarins.
Ef sá sem kærir úrskurð eða dómsathöfn skilar ekki greinargerð, ef því er að skipta, og kærumálsgögn til Hæstaréttar innan þess frests sem greinir í 3. mgr. 147. gr. eml. verður ekki frekar af máli. (4. mgr. 147. gr. eml.)
Þegar sá sem kærir úrskurð eða dómsathöfn hefur afhent Hæstarétti málsgögn á gagnaðili þess kost að skila innan viku til Hæstaréttar skriflegri greinargerð sem geymir kröfur hans og málsástæður sem byggt er á. Telji hann skorta á að kærandi hafi afhent Hæstarétti þau gögn máls sem þörf sé á til að leysa úr kæruefninu getur hann látið fylgja greinargerð sinni þau málsgögn sem hann telur vanta. Kjósi gagnaðili að afhenda gögn af sinni hálfu skal það gert í því horfi sem Hæstiréttur mælir fyrir um. (148. gr. eml.)
Þegar vika er liðin frá því að kærumálsgögn bárust Hæstarétti getur rétturinn lagt dóm á kæruefnið, en jafnan skal þó athuga skjöl sem berast síðar frá aðilum svo framarlega sem málinu er þá ekki lokið. (1. mgr. 149. gr. eml.)
Kæra frestar frekari framkvæmd á grundvelli úrskurðar þar til leyst verður úr máli fyrir æðra dómi. (3. mgr. 144. gr. eml.)

Ákvarðanir og úrskurðir dómara sæta kæru til Hæstaréttar innan þriggja sólarhringa frá því kærandi fékk vitneskju um þá úrlausn sem hann vill kæra.
Þeir úrskurðir héraðsdómara sem tilgreindir eru í stafliðum a – y í 1. mgr. 192. gr sml. sæta kæru til Hæstaréttar. Eftir að aðalmeðferð máls er hafin verður úrskurði eða ákvörðun héraðsdómara ekki skotið til æðra dóms, nema úrlausnin sé um atriði, sem greinir í a - d liðum 2. mgr. 192. gr. sml.
Héraðsdómari sendir svo fljótt er verða má Hæstarétti kæruna ásamt endurritum þinghalda og öðrum gögnum málsins í fjórriti.
Aðilar kærumáls geta sent Hæstarétti greinargerðir sínar innan eins sólarhrings frá því kæra berst réttinum. (3. mgr. 194. gr. sml.)
Kæra frestar frekari framkvæmd á grundvelli úrskurðar þar til leyst verður úr máli fyrir æðra dómi, nema um sé að ræða þvingunaraðgerðir skv. IX., X., XI., XII. og XIV. kafla sml. eða ef dómari telur sérstaka ástæðu til að ætla að framkvæmdin geti ekki beðið niðurstöðu Hæstaréttar. (4. mgr. 193. gr. sml.)